Omaggio jólalínan er komin í Epal! Það hafa margir beðið með eftirvæntingu eftir þessari einstaklega fallegu jólalínu sem er jafnframt nýjasta viðbótin við frábært vöruúrval danska keramíkfyrirtækisins Kähler sem á rætur sínar að rekja aftur til ársins 1839. Omaggio línuna þekkið þið flest enda nýtur hún mikilla vinsælda meðal hönnunaráhugafólks um allan heim og er auðþekkjanleg af handmáluðum röndum sem koma í ótalmörgum litum. Jólalínan inniheldur litla vasa, jólakúlur og kertastjaka með silfruðum og gylltum röndum.
Linie Design er danskt hönnunarmerki sem stofnað var árið 1980 og sérhæfir sig í hönnun, þróun og heildsölu á handgerðum mottum úr hágæða efnum. Í dag er Linie Design stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í Norður-Evrópu.
Linie Design vinna mikið með hefðir, bæði þegar kemur að norrænni hönnun en einnig þegar kemur að einstöku handverki. Allar motturnar eru hannaðar af hæfileikaríkum Skandinavískum hönnuðum og handgerðar af Indverskum handverskmeisturum sem hafa fullkomnað sitt handverk í gegnum margar kynslóðir.
Við bjóðum upp á gott úrval af mottum frá Linie Design og einnig er hægt að sérpanta. Allt úrvalið má sjá á vefsíðu þeirra liniedesign.com ásamt því að hægt er að skoða gott úrval í sýningarsal okkar í Epal Skeifunni 6.
NOX jólaóróinn er hannaður af Jóhannesi Arnljóts Ottóssyni, gullsmið og skartgripahönnuði og er óróinn í ár skreyttur fallegri rjúpu. Óróinn kom út í fyrsta sinn jólin 2014 og var þá jafnframt fyrsti íslenski jólaóróinn á markaðinn og var hann þá skreyttur hreindýri, Íslendingar eru vel kunnir jólaóróum og eru fjölmargir sem safna slíkum og er því einstaklega skemmtilegt að geta boðið upp á íslenska og vandaða jólaóróa.
Óróinn er úr gull eða silfurhúðuðu sinki og kemur í fallegri öskju með svörtum silkiborða sem á stendur Gleðileg jól á öllum norðurlandamálunum og aftan á er þýska, spænska og enska. Nox jólaóróinn er einstök íslensk hönnun sem gaman er að safna.
Alþjóðlega litakerfið Pantone gaf út á dögunum hver litur ársins 2016 er og í fyrsta skipti urðu fyrir valinu tveir litir, það eru litirnir PANTONE 15-3919 Serenity & PANTONE 13-1520 Rose Quartz. Í tilkynningunni frá Pantone segja þeir litina eiga að færa okkur ró og innri frið, við bíðum því spennt eftir að sjá hvort að fleiri hönnunarfyrirtæki komi til með að færa okkur vörur í þessum litatónum. Room Copenhagen framleiðir vörur undir nafni Pantone og eru þeir þekktastir fyrir bolla og hitamál skreyttum Pantone litum. Við vorum að fá nýjustu viðbótina frá þeim en það eru bollar í litum ársins 2016 og er því önnur hliðin blá og hin hliðin bleik. Bollarnir koma í takmörkuðu upplagi og fást hjá okkur í Epal.
Louis Poulsen er eins og við flest þekkjum, danskur ljósaframleiðandi og var fyrirtækið stofnað árið 1874. Tveir af frægustu hönnuðum Louis Poulsen voru þeir Arne Jacobsen og Poul Henningsen en sá síðarnefndi hannaði einmitt eitt frægasta ljósið frá Louis Poulsen sem framleitt er enn í dag, það er PH ljósið. Louis Poulsen framleiðir þó fjölmörg önnur glæsileg og vönduð ljós og er Epal söluaðili þeirra á Íslandi. Við tókum saman nokkrar myndir sem sýna fjölbreytt úrval fallegra ljósa frá Louis Poulsen sem er jafnframt aðeins brot af vöruúrvali þeirra.
Við höfum framlengt Montana tilboðið fram til áramóta.
Peter J. Lassen stofnaði fjölskyldufyrirtæki sitt Montana Møbler árið 1982. Montana hillukerfið hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár en hillurnar er hægt að nota á ótalmarga vegu og koma þær í mörgum litum. Því er hægt að fá hillur sem sérsniðnar eru að þörfum hvers og eins og gera þær rýmið persónulegra. Montana framleiðir hillueiningar fyrir bæði heimili og skrifstofur og fer öll framleiðslan fram í Danmörku.
Jólahjörtun eru hönnuð af Isa Dawn Whyte Jensen og eigum við þau til í hvítum lit og koma þau annaðhvort með hvítri eða rauðri snúru. Jólastjörnurnar eru hannaðar af Tine Mouritsen fyrir Le Klint og koma í þremur stærðum í hvítum lit.
Jólaljósin frá Le Klint fást í Epal Skeifunni.
Vegna margra fyrirspurna höfum við ákveðið að framlengja afmælistilboðið á String hillunum fram til áramóta. String hillukerfið nýtur alltaf jafn mikilla vinsælda en það var hannað árið 1949 af sænska arkitektnum Nils Strinning. Hillurnar hafa síðan þá orðið að nokkurskonar hönnunartákni en ástæðurnar fyrir því eru nokkrar, hillurnar þykja afar hentugar og auðvelt er að bæta við skápum og hillum að vild og sérsníða String hillurnar að þínum þörfum. Hillurnar koma í nokkrum útgáfum og er þekktasta útgáfan String með umgjörð úr málmi ásamt litlum String Pocket vegghillum.
Alþjóðlega litakerfið Pantone hefur gefið út hver litur ársins 2016 er og í fyrsta sinn eru litirnir tveir en það eru litirnir PANTONE 15-3919 Serenity & PANTONE 13-1520 Rose Quartz. Í næstu viku fáum við sendingu frá Pantone með litum ársins sem fjölmargir safna. Við eigum til fjölmargar vörur í þessum fallegu litum, m.a. þessar fallegu bleik-tóna vörur hér að neðan.
- Kisukerti / Pyropet
- Vírakarfa frá Ferm Living
- Muuto dots hanker
- Vasi frá Muuto
- Rúmteppi frá Hay
- Flowepot ljós í kopar
- Ro hægindarstóll frá Fritz Hanse
- Tray table frá Hay
- Pískur frá Normann Copenhagen
- Dots púði frá Hay
- Favn sófi frá Fritz Hansen
- Dúkur frá Hay
- Design Letter krús með bleiku loki
- Bolling bakkaborð
- PH5 ljós
Omaggio jólalínan frá Kähler er komin í Epal en margir hafa beðið með eftirvæntingu eftir þessari einstaklega fallegu jólalínu. Omaggio línuna þekkið þið flest enda nýtur hún mikilla vinsælda meðal hönnunaráhugafólks um allan heim, Omaggio línan sem um ræðir eru frá danska keramíkfyrirtækinu Kähler sem á rætur sínar að rekja aftur til ársins 1839. Nýjasta viðbótin við frábært vöruúrval Kähler er glæsileg jólalína sem inniheldur litla skrautvasa, kertastjaka og jólakúlur skreytt með gylltum eða silfruðum röndum.