Við vorum að hefja sölu á vörum frá ítalska hönnunarfyrirtækinu Discipline. Discipline framleiðir fallegar vörur fyrir heimilið og hið daglega líf með áherslu á náttúruleg efni og mikil gæði.
Í vöruúrvali þeirra má m.a. finna ýmsa smávöru fyrir heimilið ásamt fallegum húsgögnum.
Við erum sérstaklega spennt fyrir þessu flotta merki sem hefur vakið mikla athygli á erlendri grundu nýlega. Fyrirtækið er ungt en á svo sannarlega mikið inni.
Kíkið endilega á úrvalið í verslun okkar Skeifunni 6, einnig viljum við benda á að hægt er að sérpanta allar vörur frá Discipline sem ekki eru til í verslun okkar. Vefsíðu þeirra má finna á: www.discipline.eu