LENTZ Copenhagen er nýjung í Epal sem alvöru sælkerar mega alls ekki láta framhjá sér fara.
Lentz Copenhagen er sannkallað handverk er kemur að sætum molum til að narta í eða deila með öðrum. Á bak við merkið stendur Michael Jacques Lentz sem er ekki bara bakari, heldur einnig sælgætisgerðasmiður og stórkostlegur súkkulaðiframleiðandi.
Lentz stendur sjálfur í eldhúsinu á vinnustofu rétt fyrir utan Kaupmannahöfn þar sem heimagerðar karamellur og súkkulaði er handunnið af mikilli alúð og virðingu fyrir hráefninu. Hann sækir innblástur hvaðanæva að úr heiminum, en þó sérstaklega til Parísarborgar. Vörurnar frá Lentz fást í verslunum á borð við Harrods í London, D‘Anglaterre hótelinu og nú loksins í Epal.