Ruslatunna gerð úr rusli!
Vipp kynnir ‘Rubbish’ – endurunna útgáfu af klassísku ruslatunnunni sem hönnuð var árið 1939 og er nýja Vipp ruslatunnan gerð úr 75% endurnýttum efnum.
Það þarf vart að kynna Vipp til leiks, sem hanna ein fallegustu eldhús síðari ára – með sögu sem nær allt aftur til ársins 1939 er pedal-tunnan leit dagsins ljós. Verkfræðingar Vipp skoruðu á sig sjálfa með að endurskoða framleiðslu tunnunnar í þeim tilgangi að draga úr hráefnisnotkun með því að endurnýta eigin framleiðsluúrgang. Hver tunna kemur í stað 3,7 kg af stáli fyrir plast og sag sem annars er brennt á ruslabrennslustöð. Endurvinnsla viðarins þýðir að CO2 er geymt í vörunni frekar en losað út í andrúmsloftið. Rubbish tunnan verður fáanleg frá og með 15. febrúar 2023.