Mottuverksmiðjan Élivogar var stofnuð haustið 2011. Þar eru hannaðar og framleiddar handunnar, tuftaðar, mottur úr íslenskri ull fyrir gólf og veggi. Hönnuðir Élivoga eru þær Sigríður Ólafsdóttir og Sigrún Lára Shanko og vinna þær aðeins með náttúruleg efni og leggja einnig áherslu á umhverfisvæna framleiðslu. Motturnar voru kynntar á Hönnunarmars fyrr á þessu ári í Epal og eru nú loksins komnar í sölu hjá okkur.
Flower er fallegt borð með lífrænu formi hannað árið 2004 af hinni dönsku Christine Schwarzer og er framleitt af Swedese.
Borðið kemur í tveimur gerðum, Flower og Flower Mono. Flower er með lamineraða borðplötuí hvítu, svörtu eða rauðu ásamt fallegum viðarkant í Eik, Birki eða Hnotu. Flower Mono er einlitað og borðplatan er með hvítum eða svartlituðum Aski.
Flott borð fyrir smart heimili!
Þetta flotta borð heitir Tablo Table og er framleitt af Normann Copenhagen og hannað af Nicholai Wiig. Auðvelt er að setja borðið saman, en engar skrúfur eða verkfæri þarf að nota.
Þess má geta að hönnuðurinn Nicholai Wiig Hansen er tilnefndur sem besti danski hönnuðurinn árið 2012 af Bolig Magasinet. Normann Copenhagen eru nokkuð sigurstranglegir, en tveir af þeirra hönnuðum eru tilnefndir sem bestu hönnuðirnir, hönnuðurinn Simon Legald er tilnefndur sem besti nýliðinn í ár, ásamt því að Normann Copenhagen eru tilnefndir sem besti hönnunarframleiðandinn í Danmörku.
Flott hjá þeim!
Við megum til með að sýna ykkur myndir af þessari fallegu íbúð sem finna má í Aþenu, þarna býr mikill fagurkeri og sjá má hönnun eftir til dæmi Arne Jacobsen, Philippe Starck, Konstantin Grcic ásamt fleirum. Þessar myndir eru fengnar að láni frá frábæru vefsíðunni Yatser.com, en hægt er að sjá fleiri myndir ásamt því að fræðast um þessa íbúð hér; http://yatzer.com/Grand-Dame-ASKarchitects-Piraeus-Greece
Fallega ljósir Svanir
Ero stólar eftir Philippe Starck, framleiddir af Kartell
Chair one eftir Konstantin Grcic
Þessi ljós þekkjum við flest, eftir Poul Henningsen
Eggið er gullfallegt í ljósbláu
Falleg íbúð ekki satt?
Chair one / stóll no.1 var hannaður af Konstantin Grcic árið 2003 og er hann framleiddur á Ítalíu af Magis, stóllinn er staflanlegur og steyptur úr áli og bíður því upp á mikla notkunarmöguleika, innandyra sem utan. Chair one er óvenjulegur í útliti, geometrískt form hans gera stólinn örlítið framtíðarlegann, en hann er þó einnig stílhreinn og er klassísk eign.
Chair one er flottur einn og sér eða í bland við aðra stóla/hönnunartákn til dæmis Sjöuna og Maurinn eftir Arne Jacobsen og klassíska Thonet stólinn. Það kemur afskaplega vel út að blanda saman nokkrum týpum og gerir valið töluvert auðveldara!
Sebra Interior er danskt hönnunarfyrirtæki sem hannar og framleiðir húsgögn og smávörur fyrir barnaherbergi. Fyrirtækið var stofnað af Miu Dela árið 2004, en þá var hún einmitt að innrétta herbergi sonar síns Gustav, og fannst henni ekki vera til nógu gott úrval af gæða húsgögnum sérhönnuðum fyrir börn. Í dag eru alls 14 hönnuðir sem hanna fyrir Sebra en samtals eiga þau 26 börn, því er hægt að segja að þau séu með puttann á púlsinum þegar kemur að góðri hönnun fyrir börn.
Magic vase er ný vara frá Erik Bagger, en það er blómavasi sem er í raun tveir vasar í einum. Önnur hlið vasans hentar vel undir blómvendi en hin hliðin undir minni blóm, orkideur í pott eða jafnvel skart.
Erik Bagger er lærður gullsmiður og hefur hann starfað fyrir fyrirtæki á borð við Georg Jensen, Rosendahl og Royal Copenhagen. Erik Bagger hefur mikla reynslu úr bransanum og stofnaði hann fyrirtæki sitt ‘Erik Bagger’ árið 2003 ásamt Frederik Brønnum.
Hönnun Erik Bagger einkennist af lífrænum formum og skandinavískum glæsileika. Hans hönnunarsýn er að hanna klassískar vörur fyrir framtíðina, sem fólk geti enn notið eftir mörg ár.
Kay Bojesen skapaði mörg af ástkærustu viðarleikföngum sem fylgt hafa mörgum heimilum í áraraðir. Þar má nefna apann og tindáta. Kay hannaði söngfugla um árið 1950 en voru þó aldrei settir í framleiðslu fyrr en nú.
Ruth, Pop, Otto, Kay, Peter og Sunshine eru fjölskylda af litríkum handmáluðum viðarfuglum sem að hönnunaraðdáendur á öllum aldrei geta notið.
Á heimili Kay í Bella Vista sem hannað var af Arne Jacobsen var garðurinn fullur af marglitum blómum og smáfuglum, það er því enginn spurning hvaðan Kay fékk innblástur í hönnun sína.