Ert þú að leita að útskriftargjöf? Leyfðu okkur að aðstoða þig við valið, þú finnur úrval af fallegri gjafavöru í verslunum okkar sem staðsettar eru í Skeifunni, Kringlunni, Laugavegi og í Hörpu. / ásamt Keflavíkurflugvelli.
Ert þú að leita að útskriftargjöf? Leyfðu okkur að aðstoða þig við valið, þú finnur úrval af fallegri gjafavöru í verslunum okkar sem staðsettar eru í Skeifunni, Kringlunni, Laugavegi og í Hörpu. / ásamt Keflavíkurflugvelli.
Epal gefur fyrstu gjöfina.
Við bjóðum væntanlegum brúðhjónum upp á þá þjónustu að útbúa gjafalista hjá okkur, það auðveldar oft gestum valið á réttu gjöfinni.
Skráðu brúðargjafalistann í Epal og við gefum væntanlegum brúðhjónum fyrstu gjöfina ásamt afsláttarkóða sem gildir í vefverslun Epal. Gjöfin er glæsileg og inniheldur fallega Rigtig karöflu, Lyngby vasa, Skandinavisk ilmkerti mini og Love lakkrís.
Tiltektin í Epal Skeifunni klárast um helgina – enn meiri afsláttur!
Opnunartími:
Fimmtudag frá 10:00 – 18:00
Föstudag frá 10:00 – 18:00
Laugardag frá 11:00 – 16:00
Mæðrastyrkskertið 2018 fæst í Epal – með kaupum á kertinu styrkir þú efnalitlar konur til náms og nýrra tækifæra. Kertin eru hönnuð af Þórunni Árnadóttur vöruhönnuði. Kertin eru fimm talsins, með mismunandi leyniskilaboðum tileinkuð mæðrum.
Verð: 3.000 kr. og rennur allur ágóði til Menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur.
Við kynnum frábært tilboð á klassískri hönnun PH5 og PH mini frá Louis Poulsen Lighting.
// Tilboðsverðin gilda frá 1. maí til 10. júní 2018.
Verið hjartanlega velkomin á tiltekt í verslun okkar í Skeifunni dagana 11.-14. maí (lokað á Uppstigningardag, fimmtudaginn 10. maí).
Allt að 70% afsláttur af völdum vörum og 15% afsláttur af öllum vörum sem ekki eru sérmerktar. Ekki missa af okkar sívinsælu tiltekt í Epal Skeifunni þar sem hægt er að gera ótrúlega góð kaup á fallegri hönnun.
Forútsalan verður á miðvikudaginn 9. maí á milli kl. 18 – 20.
Klassíski Anglepoise lampinn var upphaflega hannaður árið 1932 af breska hönnuðinum George Carwardine og höfum við nú fengið þessa glæsilegu lampa í sölu hjá okkur í Epal.
Anglepoise lampinn er hönnunarklassík sem flestir kannast við og eru upprunalegu Anglepoise lamparnir partur af varanlegu safni Victoria & Albert listasafninu í London, ásamt því að Anglepoise Original 1227 lampinn var partur af klassískri hönnunarseríu sem prentuð var á frímerki gefin út af Royal Mail árið 2009.
Anglepoise lamparnir koma í fjölmörgum útgáfum og litum; borðlampar, vegglampar, gólflampar og loftljós svo allir ættu að geta fundið einn við sitt hæfi. Kíktu við hjá okkur í Epal Skeifunni og sjáðu úrvalið!
Loksins færðu stuðning í vinnunni!
Við bjóðum nú upp á frábært tilboð af Chadwick stólnum frá Knoll ásamt Quarterback frá Sedus.
Hönnuðurinn og frumkvöðullinn Don Chadwick hannaði skrifborðsstólinn Chadwick árið 2005 sem framleiddur er af Knoll. Chadwick hefur hlotið fjölmörg verðlaun fyrir hönnun stólsins sem er bæði góður funda- og skrifborðstóll. Chadwick stóllinn sameinar falleg form og hámarksþægindi og veitir einstaklega góðan stuðning við bak og fætur. Með einu handtaki er hægt að stilla hæð og bak stólsins, ásamt því að hækka/lækka arma eftir því hverslags verkefni er verið að vinna.
Við bjóðum núna upp á frábært tilboð á Chadwick stólnum –
Quarterback skrifborðsstóllinn frá Sedus er elegant stóll hannaður af Markus Dörner. Stóllinn veitir góðan stuðning við bak og er góður funda og skrifborðsstóll.
Vorið er loksins komið og þá er tilvalið að taka vorhreingerningu. Humdakin lumar á nokkrum góðum ráðum til að gera hreingerninguna sem einfaldasta.
Humdakin er danskt vörumerki sem býður upp á úrval af hágæða og nútímalegum hreinsivörum sem eru auðveldar í notkun, góðar fyrir húðina og áhrifaríkar Umbúðirnar eru einnig sérstaklega smekklegar og gera þrifin örlítið fallegri og auðveldari. Humdakin er einnig með fallegar textílvörur fyrir eldhús og baðherbergi.
Humdakin gerir út á gæði, notagildi, einfaldleika og skandinavíska hönnun og við erum viss um að Humdakin eigi eftir að njóta velgengni á Íslandi.
Vörurnar eru gerðar úr miklum gæðum og eru margar 100% lífrænar og án aukaefna. Vörulínan er innblásin af dönskum ströndum og skógum, með meðvitund um áhrif á umhverfið og er meðal annars allur textíll gerður úr GOTS vottuðum bómull og hreinsivörur ásamt sápum eru án parabena og litaefna. Humdakin viðarvörur eru að auki handgerðar úr 100% lífrænum bambusvið frá Indlandi.
Humdakin línan inniheldur allskyns hreinsivörur, handsápur og handáburð ásamt gæða hekluðum viskastykkjum og borðtuskum gerðum úr 100% lífrænum bómull. Humdakin eru einfaldar fallegar vörur sem skreyta heimilið, kíktu á úrvalið hjá okkur í Epal Skeifunni.
Við bjóðum væntanlegum brúðhjónum upp á þá þjónustu að útbúa gjafalista hjá okkur, það auðveldar oft gestum valið á réttu gjöfinni. Á heimasíðu okkar hér að ofan er hægt að setja saman gjafalista á auðveldan hátt en einnig er hægt að koma við í verslunum okkar og fá aðstoð starfsmanns við valið. Einnig bjóðum við upp á gjafabréf sem hafa verið vinsæl brúðargjöf.
Skráðu brúðargjafalistann í Epal og við gefum væntanlegum brúðhjónum fyrstu gjöfina.
Allar vörur frá okkur eru merktar Epal og auðvelt er að skipta þeim ef þess þarf.
Við fengum til liðs við okkur stílistann Elvu Hrund Ágústsdóttur sem dekkaði fyrir okkur borð með brúðkaupsþema og er útkoman glæsileg. Elva notaði Hammershøi stell, blómavasa ásamt hnífapörum frá Kähler og eru glösin frá iittala.
Hammershøi línan frá Kähler er í uppáhaldi hjá fjölda viðskiptavina þegar kemur að kaupum fyrir borðhaldið og skrautmuni fyrir heimilið.
Glæsilegar rákir sem einkenna línuna eru innblásnar af upprunalegum verkum þekkta sænska listamannsins Svend Hammershøi sem gerð voru í upphafi 20. aldar á verkstæði Kähler í danska bænum, Næstved.
Sérhver vara í Hammershøi línunni er niðurstaða vandlegra athugana um notagildi hlutanna, staðsetningu ráka, val á réttum litum ásamt heildar jafnvægi á hönnuninni. Á hverjum degi á verkstæði Kähler eru þessi grundvallaratriði samtvinnuð framúrskarandi handverki og góðum gæðum.
Hönnuðurinn á bakvið Hammershøi línuna, Hans-Christian Bauer, tekst meistaralega að hanna nýjar vörur fyrir línuna, og er hver ný vara ítarlega skoðuð með notagildi í huga, staðsetningu ráka og síðast en ekki síst jafnvægi og heildarútlit hönnunarinnar. Þessar sígildu og vandlega hugsuðu rákir mynda andstæðu við mjúkar útlínurnar, sem gefa hönnuninni lífræna eiginleika og jafnvægi sem gerir Hammershøi línunni kleift að samtvinnast annari hönnun einstaklega vel á nútíma heimili.