Ekki missa af frábæru tiboði af völdum gardínuefnum frá Kvadrat á aðeins 2.000 kr. metrinn. Kíktu við í sýningarsal okkar í Epal Skeifunni og sjáðu úrvalið.
Kvadrat er heimsþekktur og leiðandi textílframleiðandi í Evrópu sem framleiðir hágæða og nútímalegan textíl fyrir heimili og opinberar byggingar til að mynda áklæði á húsgögn og í gardínur.
Hönnun Kvadrat endurspeglar sérstaka áherslu þeirra að ýta við fagurfræðilegum, tæknilegum og listrænum mörkum í þeirra geira og einkennist hönnun þeirra af einfaldleika, litum og nýsköpun
Textíll frá Kvadrat spilar stórt hlutverk í mörgum þekktustu byggingum heims eins og Swiss Re í London, MoMa í New York, Walt Disney tónlistarhöllin í Los Angeles, Reichstag í Berlín, Guggenheim í Bilbao og Guangzhou Óperu húsið í China. Ásamt því vinnur Kvadrat reglulega með leiðandi hönnuðum, arkitektum og listamönnum, og má þar nefna Alfredo Häberli, Akira Minagawa, Tord Boontje, Patricia Urquiola, Ólafur Elíasson og Ronan og Erwan Bouroullec.