Jo Hammerborg fæddist í Danmörku árið 1920. Hann lærði silfursmíði í Konunglegu Listaakademíunni í Kaupmannahöfn og vann um tíma hjá Georg Jensen. Hann var mikill frumkvöðull og hugmyndasmiður og lagði mikla ástríðu í hönnun sína. Hann hafði mikla tækniþekkingu og lagði áherslu á form, virkni og fegurð í sköpunarferlinu. Hann hannaði yfir 180 lampa á sínum ferli og margir hverjir unnu til verðlauna.