Epal tekur þátt í HönnunarMars tólfta árið í röð með vandaðri sýningu á íslenskri hönnun. Former er á meðal sýnenda í Epal á HönnunarMars.
Arkitektarnir Ellert Hreinsson og Rebekka Pétursdóttir standa á bakvið FORMER. Á Hönnunarmars kynna þau sínar fyrstu vörur undir vörulínunni VERA, þar sem markmiðið er að bjóða upp á vörur þar sem fjölbreytt notagildi, einfaldleiki og gæði fara saman.
VERA bekkur – Fjölnota bekkur með blaðagrind sem kemur í grunninn í tveimur útfærslum, með eða án hliðarborðs úr náttúrusteini (Granít). Einnig er hægt að skipta út prófíl/um í blaðagrind fyrir háan prófíl, býður það á breytt notkunargildi, sem fatahengi sem dæmi
VERA hilla – Stílhrein lausn á nútímaheimilið, nýtist vel í að brjóta upp opin rými til að fá meiri nánd. Hillan er hugsuð með það að leiðarljósi að notandinn geri hana að sinni, að persónuleiki notandans sé í fyrsta sæti (primary) en hillan í öðru (secondary).
Hillan skiptist í tvennt, hilla með báruðu gleri og opnir endar sem nýtast til að geyma glös, bolla eða búsáhöld svo dæmi séu tekin.
Verið velkomin á Hönnunarmars í Epal Skeifunni.