Í tilefni 40 ára afmæli Epal voru 6 hönnuðir frá Íslandi og Danmörku fengnir til að hanna nýjar vörur útfrá íslenskum innblæstri. Í október 2015 dvöldu hönnuðurnir í fjóra daga á Listasetrinu Bæ þar sem þeir skiptust á hugmyndum, ræddu íslenska menningu og kynntust mismunandi hráefni. Verkefnið hlaut nafnið Bylgjur: undir íslenskum áhrifum og er núna hægt að kynna sér á HönnunarMars í Epal Skeifunni.
Hönnuðir voru þau: Margrethe Odgaard, Chris L. Halstrøm, Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir, Ingibjörg Hanna, Sebastian Holmbäck og Ulrik Nordentoft.
Hér að neðan má sjá brot af verkunum sem sjá má á sýningunni en sjón er sögu ríkari.