Við vorum að fá glæsilega línu Iittala í samstarfi við heimsþekkta japanska tískuhönnuðinn Issey Miyake. Línan inniheldur fallegt hágæða keramík, glermuni og heimilistextíl. Textílvörurnar eru einstakar fyrir þann eiginleika sinn að hafa “minni” sem veldur því að textíllinn fellur alltaf í sömu brotin og má þar nefna tauservíettur og borðskraut.
Fylgið Epal endilega á samfélagsmiðlunum Snapchat & Instagram : epaldesign