Jólaandinn mun svífa yfir í desember og fáum við til okkar fjóra hönnuði og stílista sem munu dekka jólaborð í hverri viku fram að jólum í Epal Skeifunni. IHANNA HOME dekkaði upp jólaborðið í Epal vikuna 24. nóvember – 1. desember.
IHANNA HOME er íslenskt hönnunarfyrirtæki sem hannar og framleiðir gæðavörur með einfaldleika og notagildi að leiðarljósi. Fyrirtækið var stofnað árið 2008 þegar Krummi herðatré leit dagsins ljós. Vörur IHANNA HOME eru seldar í fjölda fallegra verslana á Íslandi auk þess að vera til sölu víða um heim.
Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir hönnuður IHANNA HOME ásamt Iðunni Sveinsdóttur sölu- og markaðstjóra fyrirtækisins lögðu á borð og sitja fyrir svörum.
Hvernig er stíllinn á borðinu?
Stíllinn er hlýr og hátíðlegur en á sama tíma myndum við segja að hann sé stílhreinn.
Að hverju er gott að huga þegar dekkað er upp hátíðarborð?
Það er fallegt að skreyta borðið með einhverju lifandi eins blómum og greinum sem gefa borðinu alltaf mikið líf. Einnig mælum við með að velja fallegar servíettur til að leggja á borðið með og við völdum á okkar borð Forest servíettur frá IHANNA HOME. Það er einnig gott að huga að litaþema og að hafa jafnvægi í skreytingunum, að raða t.d. ekki öllu skrauti á sama stað.
Hvaðan eru hlutirnir?
Aðventukertastjaki og glervasar eru frá Menu, og stendur á Kubus bakka. Matarstell ásamt glösum eru frá Iittala og hnífapörin eru eftir Arne Jacobsen og koma frá Georg Jensen.
Viðarbakkinn heitir Sunrise og er frá Anna Thorunn og á honum standa glös og karafla frá Ferm Living. Servíettur, sniglar og værðarvoðir koma frá IHANNA HOME.