Jólaandinn mun svífa yfir í desember og fáum við til okkar fjóra hönnuði og stílista sem munu dekka jólaborð í hverri viku fram að jólum í Epal Skeifunni. Ólöf Jakobína Ernudóttir dekkaði upp jólaborðið í Epal vikuna 16. desember – 24. desember og er hún fremsti stílisti landsins.
Ólöf Jakobína lærði innanhússarkitektúr á Ítalíu og hefur unnið við margvísleg verkefni í hönnunarbransanum. Árið 2011 stofnaði hún ásamt Guðbjörgu Káradóttur hönnunartvíeykið Postulínu en þær hanna og framleiða muni úr postulíni sem njóta í dag mikilla vinsælda. Ólöf Jakobína vinnur einnig í dag sem stílisti hjá tímaritinu Gestgjafanum og er því nokkuð æfð í að leggja á borð.
Matur á Mbl.is tók stutt viðtal við Ólöfu Jakobínu og fáum við að birta textann hér. Myndir: Epal.
Við þökkum Ólöfu Jakobínu kærlega fyrir að dekka þetta glæsilega borð sem skoða má betur í verslun okkar í Skeifunni 6.
Hugmyndirnar koma alltaf úr öllum áttum. Nú langaði mig að útbúa kósí og huggulega stemmningu en um leið hátíðlega. Ég valdi dökkgráan dúk sem er að vísu rúmteppi en mér fannst bæði liturinn og vefnaðurinn svo fallegur að ég ég skellti teppinu á borðið. Mér finnst gaman að nota fínlega hluti með grófum – spila með andstæður. Stilla upp stórum og veglegum glervasa frá Georg Jensen og þar við hliðina grófum leirpotti, nota fínlegar Eucalyptus-greinar með grófum laukum, amaryllis og hýasintum. Litlu gulldiskarnir koma svo með hátíðleikann og jólatrén má ekki vanta.
Brettið á miðju borði er frá Ferm Living
Stóri kertastjakinn er Kubus frá By Lassen og á borðinu eru líka vörur frá Postulínu, hvítu postulínsjólatrén, svartir blómapottar og blómavasar.
Já, það má kannski segja það. Fallegur matur vel settur upp á disk getur verið algjört listaverk og því vissulega skraut. Það er því oft gott að nota einfalda diska fyrir fallega rétti, eitthvað sem stelur ekki athyglinni frá matnum.