BloggKISUKERTIN ERU KOMIN Posted on 29/10/201429/10/2014by EPALPyropet kisukertin eftir vöruhönnuðinn Þórunni Árnadóttur voru að koma aftur en þau ruku út eins og heitar lummur síðast. Þórunn Árnadóttir er tilnefnd til virtra hönnunarverðlauna Icon Magazine árið 2014 sem mest spennandi hönnunarstúdíóið á uppleið, það verður því gaman að fylgjast með Þórunni í framtíðinni! Kertið hannaði Þórunn þegar hún var við nám við Royal College of Art í London fyrir nokkrum árum síðan. Kertið lítur út eins og saklaus kettlingur við fyrstu sýn en inni í vaxinu er falin beinagrind sem birtist óvænt eftir að kveikt hefur verið á kertinu. Kisa er fyrsta dýrið sem fyrirtæki Þórunnar PyroPet gefur út og munu vonandi bætast við fleiri kerti í framtíðinni. Flott í jólapakkann í ár! JÓLATRÉÐ Í ÁR?HELGARBRUNCH MEÐ IITTALA