LOVE lakkrísinn 2016 er kominn og fengum við í ár tvær tegundir, en við vörum ykkur við því að það er einstaklega erfitt er að gera upp á milli þeirra enda báðir sérstaklega ljúffengir í ár. Fullkomin tækifærisgjöf handa ástinni þinni!
LOVE – Sólberja og súkkulaðihúðaður lakkrís (hvítt súkkulaði)
Þú munt alltaf eiga pláss fyrir þennan mola sem húðaður er með belgísku hvítu súkkulaði og að lokum velt upp úr ljúffengu sólberjadufti sem kitlar bragðlaukana. Fullkominn fyrir bóndadaginn, valentínusardaginn, mæðradaginn og alla aðra daga þar á milli.
LOVE – Rifsberja og súkkulaðihúðaður chili lakkrís
Þvílík veisla fyrir bragðlaukana, með grípandi bragði af rifsberjum sem er fylgt eftir með kröftugu dökku súkkulaði, og í lokin þegar þú heldur að ferðinni sé lokið kemur kitlandi bragð af Habanero chili lakkrís sem umleikur bragðlaukana. Hvílík dásemd!