Mæðradagurinn er á sunnudaginn og við tókum saman í því tilefni nokkrar hugmyndir að mæðradagsgjöf.
- Lakkrís frá Lakrids by Johan Bulow er alltaf tilvalin tækifærisgjöf. 1.400 kr.-
- Íslenskt gæðasúkkulaði frá Omnom hittir í mark hjá öllum mömmum sem elska súkkulaði. 1.300 kr.-
- Sniðug ferðadagbók frá Design Letters þar sem hægt er að punkta niður uppáhalds verslanir, veitingarhús og sniðug tips varðandi hvert ferðalag sem farið er í.
- Við eigum til gott úrval af fallegum blómapottum, blómavösum og kryddjurtapottum fyrir mömmur með græna fingur. Kryddjurtapotturinn á myndinni er frá Eva Solo. 6.500 kr.-
- Mæðradagsblómið 2016 er fallegur og fjölnota poki til styrktar Menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur. 2.500 kr.-
- Hálsmen frá Hendrikku Waage. 12.750 kr.-
- Ilmkert er alltaf góð gjöf, við eigum til frábært úrval. 5.150 kr.-