TAKK Home er íslenskt fyrirtæki stofnað árið 2016 af vinkonunum Dröfn Sigurðardóttur og Ollu Gunnlaugsdóttur sem hefur vakið mikla athygli undanfarið fyrir fallegar vörur sínar. TAKK Home sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu á gæðavörum fyrir heimilin með megináherslu á einfaldleika, fegurð og notagildi, ásamt virðingu fyrir umhverfinu. Hönnunin er innblásin af klassískri norrænni hönnun og kraftinum í íslenskri náttúru. Að auki er hún undir áhrifum af margbreytilegri menningu um heim allan sem hönnuðir TAKK Home hafa upplifað á ferðalögum sínum.
Fyrsta vörulína TAKK Home voru Tyrknesk handklæði öðru nafni Pesthemal eða Haman. Tyrknesk handklæði hafa verið stór hluti af baðmenningu Tyrkja í aldaraðir en þau hafa þá eiginleika að vera sérstaklega rakadræg, fyrirferðarlítil og þorna fljótt. Handklæðin eru hönnuð af TAKK Home og framleidd í Tyrklandi eftir hefðbundnum vefnaðaraðferðum. Þau eru úr 100% tyrkneskum bómul, með handhnýttu kögri.
Tyrknesku handklæðin eru tilvalin í ferðalagið, líkamsræktina, sundlaugina, á ströndina eða til notkunar heimavið í stað hefðbundinna handklæða. Einnig hægt að nota sem hálsklút eða ungbarnateppi.
Núna hafa einnig bæst við glæsileg rúmteppi sem eru létt og einstaklega mjúk sem einnig má nýta sem teppi á sófann. Teppin koma í þremur litum og eru hönnuð af TAKK Home á Íslandi og framleidd í Tyrklandi eftir aldagömlum vefnaðaraðferðum.