Tvær nýjar og skemmtilegar vörur frá Tulipop voru að koma á markað, en það eru minnisbækur og teygjumöppur með sætu sveppasystkinunum Bubble og Gloomy. Minnisbækurnar eru virkilega vandaðar, en í þeim eru límmiðar, og bæði auðar og línustrikaðar blaðsíður. Bækurnar eru því tilvaldar til notkunar hvort sem er sem skissubækur, minnisbækur eða dagbækur. Teygjumöppurnar eru frábærar fyrir pappírana, jafn fyrir skólakrakka sem á skrifstofuna.
Skoðið allan ævintýraheim Tulipop og sjáið alla vörulínuna á www.tulipop.is en þar má einnig lesa sögur um allar persónur Tulipop heimsins, prenta út myndir til að lita og fleira skemmtilegt. Fylgist með Tulipop á Facebook á www.facebook.com/tulipop
Tulipop vörurnar fást í Epal.