Danska barnavörumerkið Franck & Fischer var stofnað árið 2005 af hönnuðinum Annemarie Franck og rekstrarhagfræðingnum Charlotte Fischer. Franck & Fischer eru skemmtilegar barnavörur sem framleiddar eru á mjög umhverfisvænan hátt. Leikföngin eru til að mynda öll framleidd úr textíl sem gerður eru úr GOTS vottuðum bómull og eru allar textílvörur litaðar eða prentaðar án allra eiturefna. Franck & Fischer vinna í nánu samstarfi við framleiðendur sína og geta því bæði vottað fyrir umhverfisvænni framleiðslu og heilbrigðu vinnuumhverfi starfsfólks. Yfirskrift Franck & Fischer er “Design for kids- made with care”, og eru það orð að sönnu.
Við hvetjum ykkur til að kíkja við og skoða úrvalið, en heimasíðu Franck & Fischer má finna hér.