AJ lampinn var hannaður af Arne Jacobsen árið 1960 fyrir SAS Royal hótelið í Kaupmannahöfn. Sagan segir að hringlaga gatið á járnbotni lampans hafi upphaflega verið ætlað til að hafa öskubakka í, en reykingar voru afar vinsælar á þeim tíma sem lampinn var hannaður. AJ lampinn er klassísk eign sem verður bara flottari með hverju árinu sem líður.
Upphaflega var lampinn aðeins framleiddur í svörtum, hvítum og gráum lit en á fimmtíu ára afmæli lampans fræga voru bætt við fimm nýjum og skemmtilegum litum, gulum, rauðum, grænbláum, dökkbláum og sandlituðum.
AJ lampinn er falleg og klassísk eign.