Við eigum til falleg rúmföt frá íslenska merkinu Lín Design, rúmfötin eru ofin úr 410 þráða Prima bómull með silkiáferð og eru með. Tilvalið í jólapakkann í ár!
TAKK Home er íslenskt fyrirtæki stofnað árið 2016 af vinkonunum Dröfn Sigurðardóttur og Ollu Gunnlaugsdóttur. TAKK Home sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu á gæðavörum fyrir heimilin. “Hugmyndafræði okkar sem stöndum að fyrirtækinu er að skapa gæðavörur fyrir heimilið með megináherslu á einfaldleika, fegurð og notagildi, ásamt virðingu fyrir umhverfinu. Hönnun okkar er innblásin af klassískri norrænni hönnun og kraftinum í íslenskri náttúru. Að auki erum við undir áhrifum af margbreytilegri menningu um heim allan sem við höfum upplifað á ferðalögum okkar.”
Við fengum nýlega til okkar í Epal glæsilega nýja línu frá TAKK HOME, falleg rúmteppi í þremur litum. Fyrsta vörulína TAKK Home voru Tyrknesk handklæði sem notið hafa vinsælda undanfarið og eigum við von á að jafn vel verði tekið á móti nýju rúmteppunum.
TAKK HOME vörurnar fást í Epal.
Óflokkað
NÝTT: STJAKI FRÁ HAF STUDIO
Við vorum að fá til okkar fallegan aðventustjaka í takmörkuðu upplagi sem nota má allan ársins hring úr smiðju HAF studio sem hjónin Hafsteinn Júlíusson og Karitas Sveinsdóttir standa að baki.
Stjaki er einfaldur en margnota kertastjaki sem hannaður er bæði fyrir venjuleg kerti og sprittkerti. Stjaki er hugsaður fyrir öll tilefni og gaman er að skreyta hann eftir árstíðum. Passa þarf uppá að fara aldrei frá honum með logandi kertum, líkt og við á um aðra kertastjaka. Stjaki er gerður úr stáli sem er pólýhúðað og hönnun og öll framleiðsla fer fram á Íslandi.
Ljósmyndir : Gunnar Sverrisson
Við vorum að fá falleg ullarværðarvoð frá IHANNA HOME sem eru dásamlega mjúk og hlý.
Værðarvoðirnar WATER og LOOPS er nýjung frá IHANNA HOME sem ylja vel á köldum stundum. Þær eru framleiddar úr 88% ull og 12% bómull og koma í tveim litasamsetningum hvor. Værðarvoðin WATER er innblásin af því þegar kyrrð spegilslétts vatnsflatar er raskað og gárur á yfirborði hans vakna til lífsins. Mynstrið í Loops værðarvoðinni er hannað útfrá prjónalykkjum.
IHANNA HOME er íslenskt hönnunarfyrirtæki sem hannar og framleiðir gæðavörur með einfaldleika og notagildi að leiðarljósi. Fyrirtækið var stofnað árið 2008 þegar Krummi herðatré leit dagsins ljós. Vörur IHANNA HOME eru seldar í fjölda fallegra verslana á íslandi auk þess að vera til sölu víða um heim.
Tulipop kynnir með stolti nýtt og umhverfisvænt bambus matarstell fyrir börnin!
“Bambus borðbúnaðurinn er að mestu gerður úr bambus trefjum. Bambus trefjar eru umhverfisvænt efni sem auðvelt að endurvinna. Borðbúnaðurinn er komin með nýtt og ferskt útlit sem er mun litríkara og með meiri glans en vanalegt er fyrir bambus vörur. Borðbúnaðurinn hefur fengið vottun frá öllum helstu vottunaraðilum og hefur hann staðist allar hæfniskröfur.”
Tulipop borðbúnaðurinn verður í boði sem gjafasett sem inniheldur skál, disk og glas en einnig verður hægt að kaupa þessar vörur í stöku.
Við vorum að fá til okkar glæsilega viðarbakka úr smiðju vöruhönnuðarins Önnu Þórunnar Hauksdóttur sem bera heitið Sunrise. Beðið hefur verið eftir bökkunum með mikilli eftirvæntingu en langan tíma tók að finna rétta framleiðendur og því eru það gleðifréttir að fá að kynna fyrir ykkur þessa glæsilegu viðbót í sístækkandi vöruúrval Önnu Þórunnar.
Um bakkana segir Anna Þórunn;
“Viđ erum umkringd formum hvort sem þau eru manngerđ eđa úr náttúrunni en hvert og eitt okkar les ólíkt úr þeim. Ég var að vinna með geómetrísk form og fannst mér spennandi hvað við upplifun hvert og eitt okkar form á mismunandi hátt hvort sem þau eru manngerð eða úti í náttúrunni eins og með skýin. Það sem ég les t.d. út úr bakkanum er hús sem stendur undir fjalli og sólin er að koma upp…”
Sunrise bakkann er hægt að nota á marga vegu, meðal annars undir skartgripi, ilmvötn og fallega smáhluti ásamt því að bakkinn er tilvalinn til að bera fram morgunkaffið, kvöldsnarlið eða undir kertastjaka á stofuborðið.
Sunrise kostar 19.900 kr. – og fæst hjá okkur í Epal.
TAKK Home er íslenskt fyrirtæki stofnað árið 2016 af vinkonunum Dröfn Sigurðardóttur og Ollu Gunnlaugsdóttur. TAKK Home sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu á gæðavörum fyrir heimilin. Hugmyndafræði okkar sem stöndum að fyrirtækinu er að skapa gæðavörur fyrir heimilið með megináherslu á einfaldleika, fegurð og notagildi, ásamt virðingu fyrir umhverfinu. Hönnun okkar er innblásin af klassískri norrænni hönnun og kraftinum í íslenskri náttúru. Að auki erum við undir áhrifum af margbreytilegri menningu um heim allan sem við höfum upplifað á ferðalögum okkar.
Fyrsta vörulína TAKK Home eru Tyrknesk handklæði öðru nafni Pesthemal eða Haman. Tyrknesk handklæði hafa verið stór hluti af baðmenningu Tyrkja í aldaraðir en þau hafa þá eiginleika að vera sérstaklega rakadræg, fyrirferðarlítil og þorna fljótt. Handklæðin eru hönnuð af TAKK Home og framleidd í Tyrklandi eftir hefðbundnum vefnaðaraðferðum. Þau eru úr 100% tyrkneskum bómul, með handhnýttu kögri.
Tyrknesku handklæðin eru tilvalin í ferðalagið, líkamsræktina, sundlaugina, á ströndina eða til notkunar heimavið í stað hefðbundinna handklæða. Einnig hægt að nota sem hálsklút eða ungbarnateppi.
Takk Home vörurnar eru væntanlegar í Epal –
Takk Home vörurnar eru væntanlegar í Epal –
Handklæðin fást í fimm litum:
- Svart/hvítt röndótt
- Grátt/hvítt röndótt
- 3 lita, bleikt, blátt og hvítt
- 3 lita, mintugrænn, blátt og hvítt
- Grátóna munstrað
Stærðir:
- 100 x 180 cm
- 60 x 90 cm
Í tilefni þess að skólarnir séu að hefjast aftur eftir ljúft og gott sumarfrí efnum við til spennandi gjafaleiks á facebook síðu okkar í samstarfi við íslenska barnavörumerkið Tulipop.
Ævintýraheimur Tulipop er svo sannarlega skemmtilegur og með þátttöku í gjafaleiknum verður hægt að næla sér í frábærar vörur fyrir hressa skólakrakka og þar má nefna fallegar og litríkar skólatöskur, sundpoka, pennaveski, nestisbox, stílabækur og fleira.
Til að taka þátt í leiknum smelltu á facebook síðu Epal og skrifaðu athugasemd undir Tulipop myndina hvaða vöru þú vilt vinna. Sjá allt vöruúrval Tulipop í vefverslun Epal hér.
Dregið verður út föstudaginn 19.ágúst.
Tulipop skólatöskur
- Vandaðar skólatöskur sem henta yngri skólakrökkunum, upp í 12 ára aldur.
- Úr efni sem hrindir frá sér vatni.
- Með endurskini á hliðum og á axlarólum. .
- Með bólstruðu baki, stillanlegum axlarólum og ól yfir bringu.
- Hafa fengið vottun iðjuþjálfa.
- Með fjölmörgum innri vösum, hólfi fyrir möppu, klemmu fyrir lykla og sérstöku plasthólfi fyrir nesti.
- Hægt að festa sundpoka framan á töskuna.
Ertu klár í skólann? Skólarnir hefjast innan skamms og hjá okkur í Epal leynast ýmsar vörur ofan í skólatöskuna eða á vinnuborðið jafnt fyrir yngri kynslóðina sem eldri. Við bjóðum núna upp á betra úrval en nokkru sinni fyrr af vörum sem henta fyrir fyrir skólann, þar má meðal annars nefna fallegar stílabækur frá ýmsum merkjum, skemmtileg og litrík nestisbox, drykkjarílát, skissubækur og margt fleira.
Við bættum einnig nýlega við glæsilegu vörulínunni My Daily Fiction frá Normann Copenhagen og mælum með að allir sem stefna á nám í haust líti við hjá okkur og skoði úrvalið, yfir 200 smávörur fyrir fagurkera sem kunna vel að meta fallegar stílabækur, ritföng og fleira.
Vörurnar frá My Daily Fiction eru ómótstæðilegar.
Frá Room Copenhagen koma stórskemmtilegu LEGO vörurnar sem eru einnig á frábæru verði. Drykkjarmál og Lego nestisbox, einnig eru til Lego skipulagsbox í mörgum stærðum og gerðum sem hægt er að nota fyrir skipulagið á skrifborðinu.
Íslenska merkið Tulipop er með fallegt úrval af nestisboxum, stílabókum, bakpokum, drykkjarmálum og fleira.
Design Letters er vörulína sem skreytt er leturgerð eftir Arne Jacobsen, stílabækur, blíantar og stafaglösin hafa t.d. notið mikilla vinsælda.
Danska merkið HAY þekkið þið flest og bjóða þau upp á úrval af fallegum vörum sem henta vel í skólann, skipulagsmöppur, stílabækur, fjaðrapennar og annað smekklegt.
Tímaglösin frá HAY njóta sín vel á skrifborðinu.
Skipulagsbakkarnir Kaleido frá HAY eru fallegir á skrifborðið til að halda röð og reglu.
Þetta og svo mikið meira í verslunum okkar, kíktu í heimsókn og græjaðu þig fyrir skólann.´