Við eigum til mjög gott úrval af kertastjökum fyrir aðventuna, hægt er að skreyta þá að vild og nota svo áfram allan ársins hring.
POV kertastjakarnir frá Menu eru fallega hannaðir og hægt er að nota þá staka eða marga saman í hóp. Hægt er að leika sér með uppröðun þeirra og er POV flottur einn og sér en myndar svo skemmtilegt grafískt mynstur þegar mörgum er raðað saman.
POV sem stendur fyrir “Point of view” hefur verið vinsæll í gjöf, og er tilvalinn í pakkann fyrir væntanleg brjúðhjón.
Rebecca Uth hannaði kertastjakana Ellipse árið 2012 fyrir Georg Jensen. Kertastjakinn er gerður úr stáli og eik en andstæður efnanna gerir hann bæði hlýlegann og elegant.
Ellipse kemur í þremur stærðum og eru þeir allir mjög veglegir og flottir, eins og aðrir stjakar frá Georg Jensen.