NÝTT FRÁ TAKK HOME

TAKK Home er íslenskt fyrirtæki stofnað árið 2016 af vinkonunum Dröfn Sigurðardóttur og Ollu Gunnlaugsdóttur sem hefur vakið mikla athygli undanfarið fyrir fallegar vörur sínar. TAKK Home sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu á gæðavörum fyrir heimilin með megináherslu á einfaldleika, fegurð og notagildi, ásamt virðingu fyrir umhverfinu. Hönnunin er innblásin af klassískri norrænni hönnun og kraftinum í íslenskri náttúru. Að auki er hún undir áhrifum af margbreytilegri menningu um heim allan sem hönnuðir TAKK Home hafa upplifað á ferðalögum sínum.

Fyrsta vörulína TAKK Home voru Tyrknesk handklæði öðru nafni Pesthemal eða Haman. Tyrknesk handklæði hafa verið stór hluti af baðmenningu Tyrkja í aldaraðir en þau hafa þá eiginleika að vera sérstaklega rakadræg, fyrirferðarlítil og þorna fljótt. Handklæðin eru hönnuð af TAKK Home og framleidd í Tyrklandi eftir hefðbundnum vefnaðaraðferðum. Þau eru úr 100% tyrkneskum bómul, með handhnýttu kögri.

Tyrknesku handklæðin eru tilvalin í ferðalagið, líkamsræktina, sundlaugina, á ströndina eða til notkunar heimavið í stað hefðbundinna handklæða. Einnig hægt að nota sem hálsklút eða ungbarnateppi.

Núna hafa einnig bæst við glæsileg rúmteppi sem eru létt og einstaklega mjúk sem einnig má nýta sem teppi á sófann. Teppin koma í þremur litum og eru hönnuð af TAKK Home á Íslandi og framleidd í Tyrklandi eftir aldagömlum vefnaðaraðferðum.

JÓLAGJAFAHUGMYNDIR: FYRIR HEIMILIÐ

Fallegt teppi er klassísk jólagjöf og þá eigum við bæði við teppi sem notalegt er að kúra með í sófanum ásamt rúmteppum. Við eigum til frábært úrval af allskyns teppum í verslun okkar í Skeifunni, hér tókum við saman brot af úrvalinu.
Sjá jólaopnunartíma í Epal Skeifunni, Kringlunni og Hörpu: http://www.epal.is/opnunartimi/
FER-9007 FER-9029 HAY-501410 HAY-501411 HAY-501711 HAY-505211 HAY-505935 MAR-67372-190 NOR-602430 NOR-602431FER-8206