Á hönnunarsýningunni Salone del mobile í Mílanó í vikunni var sýningarrými Fritz Hansen fallega innréttuð íbúð skreytt húsgögnum frá þeim. Í íbúðinni mátti sjá gamlar og vinsælar vörur í blandi við nýjar og spennandi vörur frá fyrirtækinu eins og Fri armstólinn og Sammen borðstofustólinn hannaða af Jamie Hayon, ásamt nýju litavali á Sjöunni sem danski listamaðurinn Tal R valdi.
Sjón er sögu ríkari, kíkjum á þetta fallega innréttaða heimili.