Tékkneska húsgagnafyrirtækið TON á rætur sínar að rekja allt aftur til ársins 1861. TON var stofnað af húsgagnasmiðnum Michael Thonet en nafnið vísar þó ekki aðeins í nafn stofnanda þess heldur í tékknesku orðin Továrna Ohýbaného Nábytku sem stendur fyrir formbeygð-húsgagna-framleiðsla.
Alla tíð vann Thonet að þeirri hugsjón sinni að búa til falleg húsgögn sem allir gætu eignast, og sú hugsjón hans hefur svo sannarlega ræst.
Ironica er einn af fjölmörgum stólum frá TON en einföld hönnun hans, retró stíll, mikil gæði og mjög gott verð gerir hann einn af vinsælustu stólunum þeirra. Ironica stóllinn kemur í nokkrum litum og ættu því allir að geta fundið einn við sitt hæfi.
Í dag bíður TON upp á mjög gott úrval af stólum, borðum og öðrum húsgögnum á góðu verði. Húsgögnin eru tímalaus og gerð úr miklum gæðum. Vörurnar eru allar látnar fara í gegnum strangt gæðapróf til að geta staðist sem best tímans tönn og mikla notkun. Einnig eru allar TON vörur með 5 ára ábyrgð.
TON stendur fyrir gæði og klassík, kynntu þér úrvalið! Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www.ton.eu