iittala – Essence glösin voru hönnuð árið 2001 af Alfredo Häberli. Essence glasalínan er hönnuð með það í huga að vera fá glös, en geta þó borið fram allar tegundir af vínum. Fæturnir á glösunum eru allir jafnstórir sem setur sérlega fallegt jafnvægi og yfirbragð á útlitinu þegar lagt er á borð. Essence glasalínan er ein af þekktustu glasalínum í heiminum í dag. Essence hefur unnið til verðlauna eins og iF Award og Les Découvertes Award. Sérstaklega falleg hönnun sem passar inn á öll heimili.