Rúmfötin frá ernu eru sateen ofin úr lífrænni bómull. Efnið er 300 þráða, þétt ofið úr hágæða „long staple 60s“ þráðum, eitt vandaðasta hráefni sem notað er í rúmfatnað. Sateen vefnaðurinn veitir efninu styrk og endingu en gefur því einnig létta og silkimjúka viðkomu.
Rúmfötin eru lituð í þrem mismunandi tónum með svokallaðri „stone wash“ meðferð. Fyrir utan litun gefur þessi meðferð efninu fallega matta áferð og aukna mýkt. Kyrrlátir litir línunnar flæða vel sín á milli og gefa tilefni til að blanda þeim saman eftir eigin höfði á persónulegan hátt.
Allar vörur í rúmfatalínu ernu eru framleiddar í Porto, Portúgal en framleiðsla á þessu svæði er þekkt fyrir áratuga reynslu af efnum, saumaskap, vefnaði og gæða textílvörum framleiddum á vistvænan hátt í sátt við umhverfið og samfélagið, enda eru rúmfötin bæði GOTS og Oeko-Tex 100 vottuð. Allar vörur koma fallega pakkaðar í bómullarpoka með sérhannaðan borða fyrir hverja vöru.
Mælst er til að þvo rúmfötin á vægum hita með umhverfisvænum þvottaefnum, það viðheldur gæðum efnisins sem og lit.
· Framleidd í Portúgal
· 100% lífræn bómull
· 300 þráða
· „Stone wash“ litun
· Sateen ofin bómull
· Sæng – 140 x 200 cm – lokuð með 4 tölum