KÆRU VIÐSKIPTAVINIR - VIÐ ÞÖKKUM KÆRLEGA FYRIR VIÐSKIPTIN Á ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA - GLEÐILEGA HÁTÍÐ
Karfan er tóm
Takmarkað magn eftir á lager.
49.000 kr.
Heimsending 1-3 Dagar
Senda fyrirspurn
Vörunúmer: ISL-SALH-MINI-G
Glazed mirrors er hönnunarlína eftir Salóme Hollanders sem samanstendur af þremur gerðum spegla:original glazed mirror, mini glazed mirro og tall glazed mirror.Grunnformin og geómetrísk abstraktlist hafa lengi heillað Salóme og því er formlögun speglanna byggðá einu grunnformanna, hringnum. Með skörun hringformsins í ólíkum stærðum taka speglarnir á sigósymmetríska og flæðandi lögun. Speglarnir eru lakkaðir með slitsterku háglanslakki og eru fáanlegir í sjömismunandi litum. Háglanslakkið gefur speglunum mjúka og gljáandi áferð sem dregur fram bogadregnarútlínur þeirra. Salóme hannar og framleiðir hvert eintak hér á Íslandi í samstarfi við fagaðila og því fermikil ást, vandvirkni og tími í gerð hvers spegils. glazed mirros skapa nýja breidd í tilveru þína og stækkajafnframt vídd rýmisins. Vonin er að speglarnir kveiki forvitni gagnvart okkur sjálfum og umhverfi okkarásamt því að bjóða leik og ný form velkomin inn á heimilið.Salóme Hollanders (f. 1996) lauk BA-námi við Listaháskóla Íslands í vöruhönnun vorið 2022. Verk hennarliggja gjarnan á mörkum hönnunar og myndlistar, þar sem hún kannar rýmið sem skapast við skörunsviðanna tveggja. Salóme hefur tekið þátt í sýningum hérlendis og erlendis sem hafa vakið mikla athygli.
Salóme Hollanders
47,5x40
Salóme Hollanders er hönnuður og myndlistarmaður búsett í Reykjavík. Hún útskrifaðist með BA gráðu í vöruhönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2022 og vinnur nú skapandi verkefni á breiðum skala. Í gegnum verk sín ögrar hún sjálfri sér, bæði sem listamaður og hönnuður, og nýtir rýmið sem skapast við skörun sviðanna tveggja. Helstu miðlar hennar marka vöruhönnun, innsetningar, skúlptúrgerð og málverk.
Salóme vinnur gjarnan með andstæður, svo sem geómetríu, kerfi og tölur í bland við ófyrirsjáanleg og lífræn form. Hún kannar mörk efniviðarins og færir hann á milli vídda, oft inn í umhverfi eða samhengi sem virðist honum ónáttúrulegt. Áherslan er á óvænta útkomu og leit að hinu óþekkta.
Samhliða skapandi verkefnum starfar Salóme sem kennari og umsjónaraðili stafræns verkstæðis Listaháskóla Íslands. Hún er einnig annar stofnandi altént studio.
Netfang *
Lykilorð *
Muna eftir mér Innskrá
Endurstilla lykilorð?
Nýskrá