Salún er íslenskt hönnunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í heimilistextíl.
Salún er óður til hins einstaka, íslenska salúnavefnaðar en munstrin okkar eru byggð á hefðum og reglum sem salúnvefnaðurinn krefst.
Orðið Salún er að finna í íslenskum heimildum allt aftur til 14. aldar.
100% tyrknesk bómull í jacquard vefnaði
Handklæðin eru tilvalin til daglegra nota, hvort sem það er fyrir sundlaugina, ferðalög eða ströndina þar sem þau eru:
-Létt
-Rakadræg
-Þornar fljótt
-Pakkast vel