Skák munstrið er djarfur óður til köflótts salúnvefnaðar. Köflóttan salúnvefnað má í dag helst finna á minjasöfnum, í Bústaðakirkju eða á nytjamörkuðum víðsvegar um landið.
Litir línunnar eru innblásnir af íslenskum vetri, líkt og hrímuð sina við fjallsrót á köldum, björtum vetrardegi.
Baðsloppurinn í Skák munstrinu er jacquard ofinn úr tyrkneskri bómull.
Sloppurinn er með tveimur stórum vösum. Kantar á vösum, hálsmáli og handvegi eru með uppábroti með negatívu munstri. Negatívt munstur er einnig innan í sloppnum.
Sloppurinn kemur í tveimur stærðum og er fyrir öll kyn.
Efni | 100% tyrknesk bómull |
---|
Vörumerki | Salún |
---|
Litur | Svartur |
---|
Hönnuður | |
---|