Vorið er loksins komið og þá er tilvalið að taka vorhreingerningu. Humdakin lumar á nokkrum góðum ráðum til að gera hreingerninguna sem einfaldasta.
Humdakin er danskt vörumerki sem býður upp á úrval af hágæða og nútímalegum hreinsivörum sem eru auðveldar í notkun, góðar fyrir húðina og áhrifaríkar Umbúðirnar eru einnig sérstaklega smekklegar og gera þrifin örlítið fallegri og auðveldari. Humdakin er einnig með fallegar textílvörur fyrir eldhús og baðherbergi.
- Gerðu vorhreingerninguna ánægjulegri með því að fá fjölskylduna til að taka þátt, því fleiri – því auðveldara. Skipulegðu verkin eftir hverju rými fyrir sig. Best er að kveikja á uppáhalds tónlistinni á meðan.
- Hreinsaðu út – best er að ganga frá hverjum hlut á sinn stað til að auðvelda aðgengi fyrir þrifin. Byrjaðu á því að ryksuga allt vel og opnaðu út á meðan fyrir ferskt og hreint loft.
- Notaðu Humdakin Universal hreinsinn á gólf og öll yfirborð, ilmurinn er eins og draumur! Notaðu 30 ml af hreinsinum í 5 lítra af volgu vatni. Humdakin vörurnar eru góðar fyrir umhverfið og án aukaefna ásamt parabena.
- Þvoðu rúmföt með Humdakin uppþvottasápunni og mýkingarefninu – fyrir hreinan, mildan og ferskan ilm. Þú hreinlega verður að prófa þessa! Best er að leyfa þeim að þorna úti á snúru fyrir brakandi fersk rúmföt og ljúfan nætursvefn.
- Verðlaun! Fyrir vel heppnaða hreingerningu áttu skilið eitthvað fyrir þig sjálfa/nn. Í lok hreingerningarinnar er gott að kaupa nýja pottaplöntu eða afskorin blóm í vasa sem ásamt hreina heimilinu færir þér vellíðan og jafnvægi.
- Nýjar og fallegar handsápur og handáburður. Humdakin sápurnar og handáburðir eiga það sameiginlegt að vera í fallega hönnuðum umbúðum sem setja punktinn yfir i-ið á baðherberginu eða í eldhúsinu. Hendurnar verða mjúkar og ilmandi.
Humdakin gerir út á gæði, notagildi, einfaldleika og skandinavíska hönnun og við erum viss um að Humdakin eigi eftir að njóta velgengni á Íslandi.
Vörurnar eru gerðar úr miklum gæðum og eru margar 100% lífrænar og án aukaefna. Vörulínan er innblásin af dönskum ströndum og skógum, með meðvitund um áhrif á umhverfið og er meðal annars allur textíll gerður úr GOTS vottuðum bómull og hreinsivörur ásamt sápum eru án parabena og litaefna. Humdakin viðarvörur eru að auki handgerðar úr 100% lífrænum bambusvið frá Indlandi.
Humdakin línan inniheldur allskyns hreinsivörur, handsápur og handáburð ásamt gæða hekluðum viskastykkjum og borðtuskum gerðum úr 100% lífrænum bómull. Humdakin eru einfaldar fallegar vörur sem skreyta heimilið, kíktu á úrvalið hjá okkur í Epal Skeifunni.