Saga finnska hönnunarfyrirtækisins Iittala hófst árið 1881 þegar glerverkstæðið var stofnað í litlu þorpi sem hét Iittala. Það var þó ekki fyrr en uppúr árinu 1920 sem fyrirtækið varð að því sem við þekkjum það í dag og hóf það þá framleiðslu á listrænum glermunum fyrir heimilið með listamenn eins og Alvar Aalto í fararbroddi. Vöruúrval Iittala er mjög breitt og bjóða þeir meðal annars uppá falleg matarstell, kertastjaka og safngripi eftir ýmsa þekkta hönnuði og listamenn.