Sjöstrand er sænskt fjölskyldufyrirtæki, stofnað af þeim Jenny og Niklas, í skerjagarðinum fyrir utan Stokkhólm. Sjöstrand hefur náð að gjörbreyta viðhorfi til hylkjakaffis – frá ógn við umhverfið yfir í sjálfbæra og þægilega lausn fyrir heimilið. Sjöstrand vélarnar eru framleiddar úr ryðfríu stáli með góðan endingu sem lykilmarkmið. Kaffið er 100% lífrænt, Fair Trade vottað og skilur ekki eftir neitt kolefnisspor – því er síðan pakkað í hylki úr sterkju og plöntutrefjum, efnum sem brotna niður í náttúrunni og má henda með lífrænum úrgangi.