Danska hönnunarmerkið STOFF Nagel er þekktast fyrir að draga aftur fram í sviðsljósið klassísku staflanlegu STOFF kertastjakana þegar þeir hófu endurframleiðslu á þeim árið 2015. Kertastjakarnir sem hannaður voru af þýska arkitektinum Werner Stoff nutu mikilla vinsælda á sjöunda áratugnum. Í dag samastendur STOFF Nagel vörulínan af glæsilegum kertastjökum, skálum, vasa og standi svo hver og einn getur sett saman sína eigin einstöku útgáfu af STOFF.